Í dag fórum við Hafdís í mæðraskoðun. Reyndar var ég ekki
skoðaður. Þetta er allt eins og það á að vera. Við fengum að
heyra hjartsláttinn í krílinu. Það var ótrúlegt. Já ljósmóðirin
sagði að það væri mikið fjör hjá krílinu og allt í réttum
farvegi. Það var ekki sónar í dag hann veður væntanlega innan 5
vikna, þá koma nýjar myndir.
Ég
er loksins búin að ná mér úr flensunni. Eftir að ég fór á
læknavaktina. Reyndar eru ekki allir eins heppnir og ég. Ási hennar
Höllu er búin að fá að kynnast flensunni mjög vel. Úr skólanum er
allt gott, nema það að ég missti af þremur prófum. Ég fæ að taka
þau seinna.
Á
komandi helgi á að fara að ferma Helgu Rós hennar Hafdísar. Ég
ætlað að sjá um matreiðsluna í veislunni. Veisla verður í sal
Slysavarnarflélagsins. Mikið er nú gaman að vita að þetta félag sé
enn til. Þarna er til allt með merkjum félagsins. Það væri nú gaman
að eiga eitthvað af þeim. Ég ætla að bjóða uppá það sem er vinnsælt
í veislum í dag. En það er tapas. Fyrir þá sem ekki vita hvað Tapas
er þá er það litlar sneiðar úr snittubrauð sem eru ristaðar og sett
mismunandi góðgæti á. En fyrir þá sem vilja meiri fróðleik þá var
Tapas notaður mikið í Frakklandi. Eftir að rauðvíns flöskur voru
opnaðar var brauð lagt ofan á. En menn hafa þróað þetta út frá
því.
Síðustu helgi var ég uppá á Akranesi hjá henni Hafdísi minni.
Við buðum mömmu uppeftir á föstudagskvöldið og gisti hún. Henni
leist bara vel á Akranes, það er spurning hvort hún flytji einhvern
tíman þangað J
. Sunnudags morguninn var tekinn snemma. Það var Formúlu helgi. Svo
það var vaknað kl 07:00 til að horfa á Formúlu. En við tölum ekki
meira um þessa keppni.
En
þangað til næst farið vel með ykkur og njótið þess að vera til,
lífið hefur jú uppá svo margt að bjóða.